Konu á fertugsaldri var neitað um sjúkrabíl síðustu helgi. Henni var sagt að ekki væri um skutlþjónustu að ræða. Hún reyndist alvarlega veik og hún var send í aðgerð samdægurs þegar hún komst á Landspítala.
Fjallað var um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld og rætt við móður konunnar og systur hennar. Átta ár eru síðan konan var greind með MS sjúkdó,minn og er hún nú í hjólastól. Hún fór í aðgerð á kvið í síðustu viku en fékk heimild til að fara í afmæli systur sinnar í Grundarfirði síðustu helgi.
„Hún var hágrátandi, úlnliðirnir krepptir saman, hún var að missa neðri kjálkann, gat ekki haldið honum uppi – var illt í fótunum og fæturnir orðnir stífir þannig að hún gat ekki beygt þá til þess að setja þá upp á hjólastólinn,“ er haft eftir Áróru Owen, systur konunnar.
„Sú sem svaraði mér þar segir, já það þarf læknir að koma að kíkja og meta stöðuna. Og við biðum og biðum og svo hringir litla systir mín líka og loksins hefur læknir samband og kemur til okkar - þá segir hann: Þetta er allt í góðu, bara gefa henni verkjalyf og hún getur svo farið með ykkur í bæinn. Sjúkrabíllinn er ekki taxi.“
Hún segir að svo hafi læknirinn komið, sem rétt strauk yfir kviðinn á konunni og sagði að það væri ekkert að henni, að sögn Ingibjargar Sigmarsdóttur, móður konunnar. Tveimur klukkustundum síðar kom sjúkrabíll og konan flutt á Landspítalann.
„Um leið og hún kom upp á spítala var hún sent í myndatöku og það fyrsta sem sást var þessi graftarpoki sem hafði myndast utan á kviðnum á henni,“ segir Ingibjörg. Slæm sýking hafði þá verið komin í skurðinn á kviðnum. „Og hún er enn uppi á spítala, enn með dren og sýklalyf í æð.“
Áróra segist ekki vilja hugsa þá hugsun til enda ef þær hefðu ekki verið aðstoðaðar. „Ég held að hún væri örugglega ekki hérna meðal okkar miðað við kvalirnar sem hún var með.“