Farþegum einkaþotu vísað snarlega úr landi á sunnudag – Ætluðu að skoða gosið

Farþegar sem komu hingað til lands með einkaþotu á sunnudag var vísað snarlega úr landi, en grunur leikur á að fólkið hafi komið hingað til lands gagngert til að skoða eldgosið í Geldingadölum.

Fjallað var um þetta mál í fréttum RÚV í gærkvöldi og sagði Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurnesjum, að fólkið hafi ætlað sér að vera hér á landi í tvo daga.

Reglum samkvæmt þarf fólk að vera með bólusetningavottorð í farteskinu til að sleppa við sóttkví en svo virðist sem fólkið hafi ekki verið með neitt slíkt með sér. Var fólkinu því vísað úr landi eftir tólf tíma lögbundinn hvíldartíma áhafnar vélarinnar. Um borð voru tveir farþegar og tveir flugmenn en umrædd vél kom frá Sviss.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sagt það áhyggjuefni ef fólk freistast til að koma hingað í stuttan tíma til að sjá eldgosið og fari ekki í sóttkví.

Sigurgeir segir að þeir ferðamenn sem hingað komu um helgina og voru með stuttar bókanir hafi allir verið með bólusetningarvottorð eða vottorð um fyrri sýkingu. Í slíkum tilfellum gerir lögregla engar athugasemdir.