Farþegar rútunnar sem fór út af veginum vestan við Þrengslaveg í gærmorgun eru afar þakklátir fyrir viðbrögð bílstjórans. Þetta kemur fram í fréttmbl.is
Um tuttugu manns voru í rútunni og voru þau á leið í vinnuferð á Flúðir. Mikil hálka var á veginum og hvasst og byrjaði rútan að renna til í vindhviðunni samkvæmt Írisi Sigtryggsdóttur, rekstrarstjóra Bus4U.
Rútan hefði getað farið á hliðina ef ekki hefðu komið til skjót viðbrögð rútubílstjórans. „Hann ákveður að keyra hana út af. Þetta voru snilldarviðbrögð hjá honum,“ segir Íris í samtali við mbl.is
„Hópurinn er búinn að hafa samband og þau eru endalaust þakklát fyrir hans viðbrögð.“
Á eftir rútunni komu bílar sem áttu í erfiðleikum á veginum þar á meðal saltbill frá Vegagerðinni. Hann náði að halda sig á veginum en hefði hæglega geta lent aftan á rútunni. „Allt fór vel og við erum endalaust þakklát fyrir það,“ segir Íris.
Rútan var dregin í burtu um tíuleytið í gærkvöldi í samstarfi við lögregluna, en loka þurfti veginum á meðan. Verkefnið tók um klukkustund.
Að sögn Írisar er rútan komin í hús. Hún var yfirfarin í morgun og var hún með öllu óskemmd.