COVID-19 faraldurinn mun mögulega ná hámarki hér á landi í kringum 10. apríl. Þetta sagði Alma Möller landlæknir í þætti á RÚVnú í kvöld. Athygli vekur að 10.apríl er föstudagurinn langi, dagur sem margir tengja einmitt við að halda sér til hlés heima fyrir.
Alma tók fram að dagsetningin væri gefin upp með ákveðnum fyrirvörum og ekki sé hægt að fullyrða neitt. Sérfræðingar hafi tekið mið af því hvernig veiran dreifist hér á landi og tóku horfðu einnig til hegðunar veirunnar í öðrum löndum, þá sérstaklega Kína og Ítalíu.
Gerðu sérfræðingarnir spá um hvernig þróunin gæti orðið hérlendis. „Þá eru bestu spár sem segja að við verðum á hápunkti faraldursins kannski 10. apríl, plús mínus kannski fimm dagar eða nokkrir dagar, um miðjan apríl getum við sagt,“ sagði Alma.