Fanný sýnir verð­hækkun á flugi á einum sólar­hring: „Hvað er eigin­lega í gangi?“

Fanný Laust­sen er furðu lostin eftir hún leitaði af flugi til Ali­cante með sólar­hrings milli­bili.

„Var inni á síðu sumar­­ferða í gær og rétt áðan.....frá því í gær hefur verð hækkað í flugi frá kef til ali­cante... haldið ykkur núna... var í gær 107.800......ennnn í dag 239.600.....hvað er eigi­lega í gangi?“ spyr Fanný í Face­book hópnum Vertu á verði – eftir­lti með verð­lagi.

Jósef Smári Bryn­hildar­son bendir Fanný hins vegar á að fara inn á annarri IP tölu og Unnar már Sigur­björns­son segir það sama. „Hreinsa cookies eða nota VPN þjónustur,“ segir Unnar.

„Alltaf nota incognito/private glugga til að skoða bókunar­­síður. Þá geymist ekki leitin og al­grímið getur ekki hækkað verðið eftir hentug­­leika,“ skrifar Æsa Ingólfs­dóttir.

Sigurður Karls­son bendir síðan fé­lags­mönnum á hvernig er hægt að hreinsa kökurnar svo síðan muni ekki eftir þer. „Ferð inní stillingar í vafranum hjá þér, þar ættir þú að sjá c­lear cookies flipa“