Fann forláta Biblíu frá síðustu öld með einstakri áritun: Leitar nú upprunalegs eiganda – Veist þú hver „Magga“ gæti verið?

Rannveig nokkur hefur birt færslu á Facebook þar sem hún leitar að Möggu, sem gæti verið upprunalegur eigandi forlátrar Biblíu sem var keypt á nytjamarkaði á dögunum á 300 krónur.

„Þegar heim var komið sá hann að búið var að árita saurblaðið og þar er skrifað með afskaplega fallegri skrautskrift „Jólin 1973. Gleðileg jól elsku Magga mín. Frá pabba.““

Rannveig segist hafa verið hugsað til þess að að í kringum 1985 hafi hún lánað bróður vinkonu sinnar biblíu, sem hún hafði fengið í fermingargjöf frá Pétri heitnum Sigurgeirssyni, biskupi og var með fallegri áritun frá honum til sín.

„Þessa biblíu sá ég aldrei aftur og hef saknað hennar síðan. Ég velti því fyrir mér hvort hér sé eins farið.“ Segir Rannveig og spyr:

„Ætli hún hafi óvart farið í rangar hendur og endað á þessum nytjamarkaði?“

Hún bætir við að ef einhver kannist við hana og vilji hana aftur megi endilega senda sér skilaboð.