Ónefndur maður á veraldarvefnum birti myndband í dag þarf sem hann segist hafa séð heldur óvægin skilaboð í hraðbanka Landsbankans í dag. Í myndbandinu, sem er falsað, stendur á hraðbankanum „Edda Falak vinnur ekki í þessum banka.“
Líklegast er um grín að ræða en myndband mannsins blekkti þó marga og hefur Karítas Ríkharðsdóttir, sérfræðingur í samskiptum hjá Landsbankanum, eytt deginum í slökkva elda á samfélagsmiðlum.
Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir, lögfræðingur og vinkonu Eddu, féll fyrir fölsuninni um stund og skrifaði: „Djöfull er þetta lágkúrulegt, hvaða aumingjalegi wanker henti þessu í framkvæmd?“ áður en hún eyddi tístinu.
Það er ekki skrýtið að margir hafa fallið fyrir myndbandinu enda um ágætis fölsun að ræða en það er því miður margt hægt með tækninni í dag.
Fréttin.is ákvað ekki að athuga staðreyndir málsins og birti frétt um myndbandið en Karítas mætti þar í athugasemdir til að láta lesendur vita að um lygi væri að ræða.
„Umrætt myndskeið og skjáskot úr því eru fölsuð. Á myndinni og myndskeiðinu er texti sem vísar til starfra nafngreindrar konu. Um er að ræða fölsun og að sjálfsögðu hefur slíkur texti aldrei birst í hraðbanka Landsbankans. Okkur þykir miður að einhver sjái sér hag í að vega að umræddi manneskju með þessum ósmekklega hætti,“ skrifar Karitas.
Myndbandið má sjá hér að neðan.