„Lífið færir manni eitt og annað, stórt og smátt. Hér er eitt af því stærsta og dýrmætasta sem ég hef fengið í fangið: Eyvindur sonur minn,“ segir Karl Ágúst Úlfsson, leikari, leikstjóri og handritshöfundur í fallegri kveðju á Facebook-síðu sinni.
Við kveðjuna er mynd af honum með syni sínum, Eyvindi Karlssyni, en Eyvindur hefur meðal annars getið sér gott orð í tónlist og sem rithöfundur. Eyvindur sér til dæmis um tónlistina í Fíflinu, nýrri sýningu Karls sem sýnd er um þessar mundir í Tjarnarbíói.
„Við höfum gengið í gegnum margt og misjafnt, bæði saman og hvor í sínu lagi, en það sem uppúr stendur í seinni tíð eru verkin sem við höfum skapað í sameiningu. Eitt af þeim er sýningin FÍFLIÐ, sem við frumsýndum í Tjarnarbíói um síðustu helgi. Þetta er líklega fimmta leiksýningin sem við vinnum að saman ásamt Ágústu Skúladóttur (sem er líka einn af stærstu vinningunum í happdrætti lífs míns) og nú klökkna ég aftur og aftur yfir viðtökunum sem FÍFLIÐ er að fá hjá áhorfendum sínum. Já, svona fer aldurinn með mann,“ segir Karl Ágúst í færslu sinni og benir svo orðum sínum að syni sínum, Eyvindi.
„En það var ekki það sem ég ætlaði að segja, heldur þetta: Elsku Eyvindur minn, ég á engin orð til að lýsa því hvað þessi vinna okkar saman hefur verið mikið ævintýri, mikil gjöf - og þú mátt alveg vita að enginn hefði gert þetta betur en þú. Það er einmitt svona sem mér þykir gott og fallegt að ljúka ferli mínum, með þig við hlið mér á sviðinu.“