Samtök atvinnulífsins, VR og Landsamband verslunarmanna hafa undirritað nýjan kjarasamning í Karphúsinu.
Almennar launahækkanir verða 6,75 prósent og munu þær taka gildi 1. nóvember 2022. Hagtaxtarauki 2022 fellur niður samhliða. Samningurinn gildir til 31. janúar 2024 og er skammtímasamningur.
Hann felur þá einnig í sér 103 þúsund króna desemberuppbót og 56 þúsund króna orlofsuppbót og þá er hagvaxtarauka flýtt.
Ny´jar launatöflur taka gildi nú þegar með taxtabreytingum áþekkum samning Starfsgreinasambandsins. Segir jafnframt í samningnum að unnið verði markvisst að nýjum langtímasamningi og er sú vinna þegar hafin.