„Orðan er lítið notuð hjá mér og get því lánað einhverjum sem öfundast af henni,“ segir Anna Þrúður Þorkelsdóttir sem á árinu 2000 fékk riddarakross fálkaorðunnar.
Anna var sæmd fálkaorðunni fyrir störf að mannúðarmálum sem formaður Rauða krossins. Ofangreind orð lét hún falla á Facebookþræði stjörnublaðamannsins Jakobs Bjarnars Grétarssonar þar sem grundvöllur fálkaorðuveitinga var til umræðu. Sitt sýndist þar hverjum.
„Ég undirrituð er svo bráðheppin að hafa verið sæmd fálkaorðunni fyrir rúmum 20 árum. Ekki fyrir neinar ofangreindar forsendur heldur ólaunuð störf í þágu lítilmagna,“ lagði Anna orð í belg og bauðst til að lána orðuna til þeirra sem öfunda hana af henni eins og fyrr segir.
„Ég er bara þakklát fyrir að lítilfjörleg kerling hafi hlotið þessa orðu,“ bætti Anna við.
Leiklistargagnrýnandinn Jón Viðar Jónsson benti þá Önnu á að varhugavert gæti verið fyrir hana að setja fálkaorðuna sína í hendurnar á öðrum.
„Það varðar örugglega við lög að lána öðrum orðuna. Þú þarft að kynna þér það vel áður en þú leggur út í slíka góðgerðarstarfsemi,“ undirstrikaði Jón Viðar í innleggi sínu og bætti við annarri ábendingu til Önnu - upp á seinni tíma.
„Svo má ekki heldur fara með hana í gröfina, heldur ber að skila henni þegar orðuhafi hefur kvatt þetta jarðneska líf og haldið þangað sem ekki fer sögum af orðuveitingum,“ ítrekaði Jón Viðar.
„Gott að vita Jón Viðar, vissi þetta svo sem,“ svaraði þá Anna Þrúður.