Bangsaleit á höfuðborgarsvæðinu hefur slegið í gegn og á Facebook-síðunni Bangsaleit á höfuðborgarsvæðinu er hægt að skrá sig, setja inn myndir og götuheiti hvar bangsa er að finna úti í glugga. Oddný Árnadóttir skipulagði þennan viðburð og segir hugmyndina snúast um útiveru barna og gefa fjölskyldum tækifæri á að leysa skemmtilegt verkefni saman.
Sumir hafa nýtt sér viðburðinn til að slá á létta strengi og einn af þeim er Guðmundur Sigurðsson. Hann á Mynd dagsins að þessu sinni á Hringbraut en Guðmundur birti upphaflega myndina á Facebook. Fyrir ofan myndina skrifaði Guðmundur:
„Bangsinn kominn í gluggann. Eitthvað af kvenþjóðinni veifar til mín.....eða bendir......löggan er líka komin.“
Í samtali við Hringbraut útskýrir Guðmundur ákvörðun sína:
„Það er náttúrulega búið að rigna yfir okkur öll slæmar fréttir og tölur. Ég er í sóttkví og mér fannst upplagt að gera eina mynd sem myndi vonandi gleðja einhverja vini mína á Facebook og gera aðra hissa.“ Segir Guðmundur glettinn og bætir við að lokum:
„Viðtökurnar urðu miklu meiri heldur en ég gerði mér grein fyrir og gaman að mér hafi tekist að gleðja einhverja.“