Vöxtur Marel er mjög til umræðu í samtali þeirra Árna Odds Þórðarsonar og Jóns G. í kvöld. Fram kemur að Marel var skráð í Kauphöllina á Íslandi vorið 1992 og þá voru starfsmenn aðeins 45 talsins. Núna eru starfsmenn yfir 6 þúsund og skrifstofur í yfir 30 löndum. En það er fleira athyglisvert. Þegar Marel var skráð árið 1992 var gengi bréfa í félaginu 1,19 en við lokun markaða í Kauphöllinni í gær var gengi bréfa félagsins 557,0. Þetta er því 468-földun á 27 árum og þýðir að 1 milljón sem var lögð í Marel í upphafi árið 1992 og arðgreiðslur allra ára notaðar til að kaupa bréf í Marel aftur, er orðin að nær hálfum milljarði króna. Þettta er yfir 26% ávöxtun á hverju ári. Ein fjölskylda hefur átt í Marel frá upphafi skráningar í Kauphöllinni; það er fjölskylda Sigurðar Egilssonar. Af þessu má ráða að Marel hefur ávaxtað pund þúsunda Íslendinga býsna vel.
Fáheyrð hækkun bréfa í marel: 1 milljón frá árinu 1992 orðin að tæplega hálfum milljarði
Fleiri fréttir
Nýjast