Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata fagnar á Facebook síðu sinni ákvörun borgarinnar um að sameina alla þjónustu við dýr í Dýraþjónustu Reykjavíkur sem staðsett verður í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum en þar verði þróað athvarf fyrir týnd og villt dýr.
„Með þessu erum við að bæta, einfalda og auka skilvirkni þjónustu við dýr og dýraeigendur. Þetta var ein af kosningaráherslum okkar Pírata sem rataði í meirihlutasáttmálann og verður nú að veruleika,“ skrifar Dóra og margir taka undir með henni. Einn er hugsi yfir því hvert mál muni rata þegar hundar ráðist á fólk: „... er umhugað um hættu sem stafar af sumum hundum og spyr: „...eitt sem þyrfti lika að athuga hvern á að tala við þegar hundur ræðst á blaðbera og börn ..og svarar Dóra því að Dýraþjónustuna Reykjavíkur (DÝR) myndi einmitt taka á slíku.
Dóra tíundar breytingarnar og nefnir fyrst að samhliða verði hundahald loksins formlega leyft í Reykjavík. Þá munu hundagjöld lækka verulega, um allt að helming og verða þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu og meiri lækkun gjalda ef skráningum fjölgar að einhverju marki. Skráningarferli hunda verður rafrænt, Hundaeftirlitið lagt niður og fært til DÝR eins og og málefni katta sem flytjast þangað frá Meindýraeftirlitinu. Hundagerðum verður fjölgað og þau bætt og meira samstarf við dýravelferðarfélög fylgir DÝR, skrifar Dóra.