Færsla Brynjars veldur titringi: „Pín­legt rugl út og suður“ – Gunnar Smári hlær

Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, liggur sjaldnast á skoðunum sínum og hefur færsla sem hann birti í dag um mál­efni Þor­valdar Gylfa­sonar valdið nokkrum titringi.

Brynjar byrjar færslu sína á því að skjóta nokkuð föstum skotum að Stundinni og Kjarnanum og full­yrðir að þeir „titri af reiði“ vegna þess að Þor­valdur var ekki ráðinn rit­stjóri Nor­dic Economic Poli­cy Revi­ew.

„Auð­vitað má hver sem er hafa skoðun á ráðningum í hin og þessi störf, líka þeir sem titla sig frjálsa og ó­háða blaða­menn. Betra hefði þó verið að þeir hefðu kynnt sér málið betur í stað upp­hrópana strax,“ segir Brynjar í færslunni og heldur á­fram:

„En alltaf þegar upp­hlaups­liðið ríkur upp til handa og fóta heimta þing­menn, sem halda að þeir séu rann­sóknar­dómarar, að þing­nefndir taki upp málin. Síðan boða þeir til fundar ein­hverja pólitíska sam­herja sína úr úti í bæ, hvort sem þeir heita Þórður Snær eða Hall­dór Auðar Svans­son, eins og þeir hafi ein­hverjar gagn­lega upp­lýsingar fram að færa. Þetta væri eins og ég boðaði alltaf vini mína í SUS í hvert mál sem tekið er fyrir í nefndum.“

Jakob Bjarnar Grétars­son, blaða­maður Vísis, gefur lítið fyrir skrif Brynjars og segir í at­huga­semd undir færslunni:

„Þetta er bara eitt­hvað pín­legt rugl út og suður, fjöl­margar mót­sagnir og ekki stendur steinn yfir steini. Þið ruglið saman (hugsan­legum við­brögðum ein­hverra sem enginn veit hver er) saman við frétta­flutninginn sjálfan. Farið að lesa ein­hverja vit­leysu í fréttir og haldið svo að sú túlkun sé orðin að stað­reynd í frétt. Brynjar, flokks­hollusta er ekki dyggð. Þetta veistu. Ekki vera agent heimskunnar.“

Þessu svarar Brynjar á þá leið að það þurfi ekki að vera nema sæmi­lega læs til að sjá þetta í frétta­flutningnum. „Svo bætast við skoðana­pistlar. En þú verður að viður­kenna að Kjarninn og Stundin hefðu mátt kynna sér málið betur áður en fyrstu fréttir voru skrifaðar.“

Gunnar Smári Egils­son, rit­stjóri til margra ára og einn af stofn­endum Sósíal­ista­flokksins, gefur sömu­leiðis lítið fyrir mál­flutning Brynjars.

„Það er sama hversu fórnar­lömb kúgunar, þöggunar, fá­tæktar og of­beldis reyna að styrkja sína rödd og hrópa; alltaf yfir­gnæfir grátur Sjálf­stæðis­manna mál­flutning þeirra, ýlfrandi af sjálfs­vor­kunnar­gól yfir að um vald­níðslu xD, heimsku og hroka, sé fjallað. Hvítir mið­aldra þokka­lega stæðir karlar í Sjálf­stæðis­flokknum upp­lifa sig sem of­sóttan og hrjáðan hóp, sem aldrei nýtur sann­mælis, aldrei fær það sem hann á skilið og aldrei fær nógu að ráða.“

Gunnar Smári segir að ef þetta væri ekki svona fyndið og hjá­kát­legt væri næstum hægt að vor­kenna þessum körlum. „En ég nenni því ekki núna. Ég læt mér nægja að hlægja; hahaha, hvílkur vælu­kjói.“

Skoðanamiðlarnir, Kjarninn og Stundin, sem auglýsa sig sem frjálsa og óháða fjölmiðla, titra af reiði yfir þeirri...

Posted by Brynjar Níelsson on Föstudagur, 12. júní 2020