Fær 50 þúsund króna sekt fyrir að aka á 60 kílómetra hraða

Alls hafa 35 ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Lögregla hefur verið við eftirlit í íbúðarhverfum í Keflavík, enda skólarnir komnir á fullt og börn áberandi í hópi gangandi vegfarenda.

Í skeyti sem lögreglan sendi frá sér kemur fram að 19 af þessum 35 ökumönnum hafi ekið of hratt í götum þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund. Sá sem ók hraðast mældist á 60 kílómetra hraða og þar með á tvöföldum hámarkshraða. Samkvæmt sektarreikni lögreglu, sem er aðgengilegur á vef lögreglunnar, má umræddur ökumaður eiga von á 50 þúsund króna sekt. Hefði hann mælst á 64 kílómetra hraða hefði sektin verið 70 þúsund krónur.

Þessu til viðbótar hefur lögregla tekið nokkra ökumenn úr umferð vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá reyndust tveir aka sviptir ökuréttindum.