Fæddist með sjaldgæfan sjúkdóm: Berst fyrir lífi sínu næstu vikur

Hin fimm mánaða gamla Kamilla Eir berst nú fyrir lífi sínu á gjörgæsludeild en hún greindist með sjaldgæfan efnaskiptasjúkdóm sem ber nafnið MMA stuttu eftir fæðingu.

Sveinn Filippus Sverrisson og Kristján Páll Ingimundarson hafa hrundið af stað söfnun fyrir foreldra Kamillu, þau Styrmi og Guðrúnu, og hvetja þeir fólk til að styðja við bakið á fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum.

Kamilla fæddist síðastliðinn nóvember og kom fljótt í ljós að hún glímdi við MMA sjúkdóminn. MMA lýsir sér þannig að líkami Kamillu brýtur ekki niður ákveðnar amínósýrur í próteini svo þær safnast upp og geta valdið miklum skaða á líffærum hennar.

Mynd/Aðsend

Berst næstu vikurnar

Í síðastliðinni viku var Kamilla lögð inn á Barnaspítala hringsins og þaðan á gjörgæsludeild. „Þar berst hún fyrir lífi sínu og mun koma til með að gera það næstu vikur,“ skrifar Sveinn.

„Ekki er víst hvað olli þessum veikindum en tíminn mun leiða það í ljós. Það sem upp kom var svokölluð fjölkerfabilun, í hjarta, nýru og lungum, sem sum störfuðu illa og önnur næstum ekkert. Einnig er hún með tvo staðfesta vírusa (entroveiru og nóróveiru) sem gerði þessi veikindi ennþá verri.“

Foreldrarnir geta ekki unnið

Sveinn hefur hrundið af stað söfnun fyrir fjölskyldu Kamillu sem samanstendur af foreldrum og samtals þremur systrum. „Foreldrarnir munu ekki koma til með að geta stundað vinnu vegna veikindanna um óákveðinn tíma,“ útskýrir Sveinn.

„Til þess að létta undir með þessari duglegu fjölskyldu höfum við ákveðið að fara af stað með söfnun fyrir þau. Margt smátt gerir eitt stórt.“

Reikningurinn er í nafni Guðrúnar.

Rn. 0370-13-006303

Kt. 080296-2749

Elskulegu vinir okkar, Guðrún og Styrmir, eignuðust fallega stúlku hana Kamillu Eir 12.11.2020. Stuttu eftir fæðingu...

Posted by Sveinn Filippus Sverrisson on Monday, April 26, 2021