Fæddist á Íslandi í síðasta mánuði og verður brottvísað

Mánaðar­gömlum dreng sem fæddist á Ís­landi, og fjöl­skyldu hans, sem kom til hingað í leit að vernd hefur verið synjað um efnis­lega með­ferð umsóknar sinnar um hæli og verður lík­lega vísað úr landi. Fréttablaðið greinir frá þessu.

Fjöl­skylda drengsins kom hingað til lands fyrr á árinu og fékk ný­verið synjun frá Út­lendinga­stofnun um að málið yrði tekið til efnis­legrar með­ferðar vegna þess að þau eru viður­kenndir flótta­menn í öðru ríki, það er Grikk­landi.

Niður­staða Út­lendinga­stofnunar hefur verið kærð til Kæru­nefndar út­lendinga­mála og bíða þau enn niður­stöðu hennar.

Þau Meflah og Amani­e komu til Ís­lands frá Grikk­landi fyrr á þessu ári á­samt dóttur sinni, Mayu, sem er núna þriggja ára. Þá var Amani­e gengin um átta mánuði með þeirra annað barn. Þau telja að­stæður í Grikk­landi það slæmar að þeim sé ekki mögu­legt að vera þar á­fram og komu því til Ís­lands.

Hrædd um að barnið yrði tekið af henni

Amani­e er upp­runa­lega frá Palestínu en á einnig upp­runa sinn að rekja til Líbanon og eigin­maður hennar er sýr­lenskur og palestínskur. Þau kynntust í Líbanon og urðu ást­fangin þar en þegar eigin­maður hennar reyndi að fá gögn fyrir sig frá Sýr­landi var hann hand­tekinn.

„Það er ekki skýrt af hverju hann var hand­tekinn en hann var að fara til Sýr­lands og var hand­tekinn á landa­mærunum. Ég held að það hafi verið vegna þess að hann sinnti ekki her­skyldu sinni. Hann gat ekki eftir það snúið aftur til Líbanon og fór því til Tyrk­lands,“ segir Amani­e.

Eftir það fór hún sjálf til Tyrk­lands til að hitta hann og þurfi til að komast til landsins að út­vega sér fölsuð gögn um að hún væri nemi. Þá festist hún í Tyrk­landi og gat ekki snúið aftur til Líbanon með fölsuð gögn.

„Ég varð ó­létt í Tyrk­landi og þorði ekki að fara á spítala því ég var hrædd um að vera vísað úr landi og að þau myndu taka af mér barnið,“ segir Amani­e.

Hún segir að eigin­maður hennar hafi í Tyrk­landi fengið svo­kallað Kimlik-kort sem eru per­sónu­skil­ríki og hann hafi átt rétt á því vegna upp­runa síns í Sýr­landi en hún átti ekki rétt á því vegna þess að Palestína er ekki á­litin stríðs­svæði, en Sýr­land er það.

„Ég varð þá að ferðast til Grikk­lands til að fæða barnið okkar og svo við gætum verið örugg saman,“ segir Amani­e.

Lesa má allt viðtalið við Amanie og fjölskylduna hér.