Faðir með opið bréf eftir of­beldi gegn syni sínum: „Á­rásar­mennirnir ýttu syni mínum og hans vini af hlaupa­hjólinu, drógu fram kylfu“

Faðir í Kópa­vogi varar við of­beldis­seggjum í hverfinu eftir að tveir ung­lingar réðust á son hans og vin hans með kylfum og hnefum.

Að hans sögn þurftu drengirnir að þola þung högg og er sonur hans með á­verka á enninu eftir á­rásina.

Faðir drengsins stað­festi að lög­reglan hafi fengið til­kynningu um málið og hafi reynt að svipast eftir drengjunum sem talið er að séu nokkrum árum eldri.

Fyrir heppni hafi drengjunum tekist að hlaupa út á götu og stöðva bíl sem hafi reynst fæling fyrir á­rásar­mennina sem flúðu á vespu.

Færsluna í heild sinni má sjá hér fyrir neðan:

Kvöldið.

Rétt um tíu í kvöld var 14 ára sonur minn og vinur hans á Hopp hjóli á leið úr bíó þegar ráðist var á þá af tveimur strákum á svipiðu reki (lík­lega að­eins eldri) sem voru saman á vespu. Á­rásar­mennirnir (strákarnir) ýttu syni mínum og hans vini af hlaupa­hjólinu, drógu fram kylfu og slógu þá, fyrst með kylfu og svo með hnefunum. Þeir báðir þurftu að þola þung högg og sonur minn er með stóra kúlu á enninu eftir á­rásina.

Á­rásin átti sér stað á göngu­stíg við gatna­mót Fífu­hvamms­vegar og Hlíðar­dals­vegar. Annar þeirra náði að hlaupa út á götu og stoppa rauðan bíl (takk fyrir að stoppa!) og við það flúðu á­rásar­mennirnir (strákarnir) af vett­vangi. Í þessum rauða bíl var lík­lega kona á­samt dóttur sinni.

Annar strákanna á vespunni var með af­litað hár og báðir voru klæddir í í­þrótta­föt. Þeir flúðu lík­lega ofar í hverfið eftir á­rásina en höfðu mjög lík­lega komið úr Snæ­lands­sjoppunni og elt þá þaðan.

Við kölluðum á lög­regluna sem kom og tók skýrslu og er nú að svipast um eftir á­rásar­mönnunum. Þetta er því orðið að lög­reglu­máli enda er það engan veginn á­sættan­legt að ráðist sé á fólk í okkar hverfi né annars staðar.

Þið for­eldrar sem tengið mögu­lega við lýsinguna á þessum strákum sem réðust á son minn og vin hans, takið al­var­legt sam­tal við son ykkar. Þetta er ekki í lagi

Þeir sem hafa tengsl í aðrar hverfis­grúppur ná­lægt (Kórar, Salir, Breið­holt…) endi­lega deilið því það er mikil­vægt að við tökum okkur saman um að þetta gerist ekki aftur. Við viljum öll öruggt hverfi fyrir börnin okkar og okkur sjálf.