Umfangsmikil leit fór fram í dag að Friðfinni Frey Kristinssyni á höfuðborgarsvæðinu en ekkert hefur til hans spurst í fimm daga.
„Við bíðum milli vonar og ótta,“ segir Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson faðir Friðfinns í samtali við Fréttablaðið.
Hátt í hundrað manns tóku þátt í leitinni sem lögreglan stýrði. Var leitað í lofti, á láði og legi, meðal annars með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
„Öll framganga lögreglunnar hefur verið til fyrirmyndar,“ segir Kristinn en lögreglan hefur komið tvisvar að heimili hans til að leyfa þeim að fylgjast með.
Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að síðast er vitað um ferðir Friðfinns, síðdegis fimmtudagskvöldið 10. nóvember þegar hann fór frá Kugguvogi. Hann var þá klæddur í gráa peysu með BOSS merki á og gráar joggingbuxur. Hann er 182 cm á hæð, grannvaxinn, brúnhærður og með alskegg.
Lögreglan biður íbúa í hverfinu um að skoða nærumhverfi sitt eins og geymslur, stigaganga og garðskúra. Þá eru þeir sem eru í forsvari fyrir auðu húsnæði í hverfinu beðnir um að skoða slíka staði.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Friðfinns eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 112.