Faðir Einars: „Hann vildi bara lifa í sveitinni þar sem honum leið best“

„Þetta var mjög dug­legur ungur maður sem lagði af stað klukkan sex á morgnana, vann sína vinnu og keyrði svo aftur austur,“ segir Jón Einars­son grasa­læknir í við­tali við Mann­líf.

Jón er faðir Einars Jóns­sonar sem lést þegar hús­bíll brann í landi Torfa­staða í Grafningi á föstu­dags­kvöld. Einar var fæddur 21. ágúst 1982 og var því 38 ára þegar hann lést.

Sjá einnig: Nafn mannsins sem lést þegar húsbíll brann

Jón minnist sonar síns með hlýju í við­talinu og segir að Einar hafi verið hans besti vinur. Hann hafi átt marga góða og nána vini sem allir eru í sárum núna.

Jón segir að Einar hafi búið í hús­bílnum því hann hafi verið mikið náttúru­barn.

„Einar var í fullri vinnu og sinnti henni af dugnaði,“ segir Jón en Einar var bíla­smiður og ók til vinnu í Reykja­vík alla morgna og aftur austur að vinnu­degi loknum.

„Það er ekki eins og hann hafi búið í ein­hverjum kofa heldur full­búnum hús­bíl. Hann vildi vera í sveitinni. Hann lifði lífinu mjög eðli­lega en vildi bara lifa í sveitinni þar sem honum leið best,“ segir faðir Einars meðal annars í við­talinu sem má lesa í heild sinni hér.