Til greina kemur að gefa landsmönnum aðra ferðagjöf í sumar líkt og gert var á síðasta ári. Þetta segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, í samtali við Fréttablaðið í dag sem greinir frá málinu á forsíðu.
Tekið skal fram að engin ákvörðun hefur verið tekin um slíkt en í ljósi þess hversu vel ferðagjöfin virkaði í fyrra – og hafði jákvæð áhrif á hagkerfið – telur Þórdís réttast að skoða aðrar mögulegar útfærslur á nýrri gjöf.
Málið verður rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag en núgildandi ferðagjöf gildir til loka maímánaðar.
„Það kemur alveg til greina að útfæra hana frekar og nánar. Ef ferðagjöfin er ekki nýtt af öllum þá er spurning hvort það eigi að endurgera hana þannig að þeir sem hafa nýtt hana einu sinni geri það aftur,“ segir Þórdís við Fréttablaðið.
Margt bendir til þess að ferðalög innanlands muni einkenna sumarið í ár enda kórónuveirufaraldurinn víða á fullri ferð erlendis.