Ey­þórs­dætur vilja sam­starf við Reykja­víkur­dætur

Sigga Ey­þórs­dóttir, eins systranna sem unnu Söngva­keppnina á laugar­dags­kvöld, lýsir á­huga á sam­starfi við Reykja­víkur­dætur sem urðu í öðru sæti í keppninni.

„Þið eruð alveg geggjaðar tón og listar­konur. Vonandi getum við skapað list saman sem allra fyrst, þið eruð alveg dá­sam­legar mann­verur með ó­trú­lega fal­legan og þarfan boð­skap,“ skrifar Sigga á Face­book­síðu Reykja­víkur­dætra þar sem Reykja­víkur­dætur óskuðu systrunum inni­lega til hamingju með sigurinn.

Sjá einnig: Katla biður fólk um að láta Björg í friði: „Það er ekkert vont á milli okkar“

„Í dag fögnum við því að fjórar frá­bærar tón­listar­konur eru að fara fyrir okkar hönd til Tórínó í maí með dá­sam­legu lagi og mögnuðu at­riði,“ skrifuðu Reykja­víkur­dætur. „Sigga, Elín Ey, Beta Ey og Lovísa við dýrkum ykkur og við vitum að þið munið sigra hjörtu heimsins með hæfi­leikum ykkar og hlýju,“ bættu þær við.

Í at­huga­semd við færsluna þakkar Sigga fyrir. „Takk elsku D­aug­hters of Reykja­vík . Við dýrkum ykkur sömu­leiðis.“