Ey­þór orð­laus: Sama vatnið miklu dýrara í Reykja­vík

„Þetta er sláandi munur. Þetta er ná­kvæm­lega sama vatnið í Mos­fells­bæ og í Reykja­vík,“ segir Ey­þór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæðis­flokksins í borgar­stjórn og stjórnar­maður í Orku­veitu Reykja­víkur, í Frétta­blaðinu í dag.

Þar gagn­rýnir hann það að gjald­skrá Hita­veitu Mos­fells­bæjar á heitu vatni sé í mörgum til­fellum mun lægri en hjá Veitum. Er al­mennur taxti 24 prósentum lægri hjá Hita­veitu Mos­fells­bæjar og munar um 32 krónum á rúm­metra.

Fram kemur að fast gjald á dag sé lítið eitt hærra en hjá Veitum en verð til gróður­húsa sé 43% lægra hjá Hita­veitu Mos­fells­bæjar og tæpum 15% lægra til sund­lauga.

Bent er á það að Hita­veita Mos­fells­bæjar hafi gert samning við Orku­veitu Reykja­víkur um að kaupa heitt vatn á heild­sölu­verði. Verð­lagning hjá Veitum byggir á á­kvörðunum stjórnar og for­sendum um arð­semi.

„Stóra hita­veitu­fyrir­tækið ætti að vera með lang­hag­stæðasta verðið. Ég tel að það sé allt of lítill á­hugi hjá Orku­veitunni á að lækka verð til not­enda, for­gangs­málið er frekar að greiða arð til Reykja­víkur­borgar.“