Eyþór Ívar: Ég elska Ítali en erfitt að vinna með þeim

Það verður víða komið við hjá Jóni G. í kvöld á Hringbraut þegar hann fær til sín þau Eyþór Ívar Jónsson, hjá Akademias, Herdísi Pálu Pálsdóttur, framkvæmdastjóra hjá Deloitte, og Egil Örn Jóhannsson, bókaútgefanda og framkvæmdastjóra Forlagsins.

Akademias er eitt merkasta framtakið í stjórnunarkennslu á Íslandi í áraraðir. Þeir Eyþór Ívar Jónsson og Guðmundur Arnar Guðmundsson stofnuðu fyrirtækið snemma á síðasta ári og býður það upp á fjölda námskeiða í eins konar miniMBA-námi. Í samtali þeirra Jóns er komið inn á stafrænu byltinguna sem er alltof skammt á veg komin hér á landi og segir Eyþór að það þurfi að gera þjóðarátak í stafrænni byltingu á Íslandi.

Eyþór útskrifaði á dögunum tíunda hópinn í námskeiðinu Viðurkenndir stjórnarmenn og hefur hann núna útskrifað hátt í 300 viðurkennda stjórnarmenn á undanförnum árum

Og þá ræða þeir Jón muninn á Dönum og Ítölum en Eyþór bjó um árabil í þessum löndum og hefur kennt við CBS-háskólann í Kaupmannahöfn í átján ár. „Ég elska Ítali og finnst þeir skemmtilegasta fólk í heimi. En það er rosalaga erfitt að vinna með þeim. En Danir eru aftur á móti skipulagðir og horfa langt fram í tímann. Báðar þjóðirnar eru frábærar á sína vegu.“

STÓRMERK BÓK UM VINNUMARKAÐINN: VÖLUNDARHÚS TÆKIFÆRANNA

Þau Jón og Herdís Pála ræða bókina Völdunarhús tækifæranna sem kom út á dögunum og er eftir Herdísi Pálu og Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur, dósent við HÍ. Þetta er afar athyglisverð bók og veitir sýn á nýja strauma á vinnumörkuðum með tilkomu fjórðu iðnbyltingarinnar. „Það er kominn tími til að endurhugsa flest það sem snýr að vinnu og hvar og hvernig við vinnum,“ segir Herdís Pála.

BÓKIN HELDUR VELLI SEM VINSÆLASTA JÓLAGJÖFIN

Egill Örn Jóhannsson, bókaútgefandi og framkvæmdastjóri Forlagsins, hefur ástæðu til að gleðjast þessa dagana eftir að metsöluhöfundur hans, Arnaldur Indriðason, fékk Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar.

Egill segir að bókin muni halda velli sem vinsælasta jólagjöfin í ár. En það eru svakalegar breytingar í útgáfu bóka. „Þannig er Forlagið í fyrsta skipti á þessu ári að gefa út fleiri hljóðbækur en prentaðar bækur. Fyrir aðeins örfáum árum gáfum við ekki út eina einustu hljóðbók en á þessu ári gefum við út vel á þriðja hundrað hljóðbækur fyrir íslenskan markað. Þetta mun hins vegar ekki hafa áhrif á jólamarkaðinn nema til góðs,“ segir Egill.