Eyþór gagnrýnir Dag og segir ekkert heyrast í honum þegar mál eru erfið

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, gagnrýnir Dag B. Eggertsson, borgarstjóra Reykjavíkur, og segir ekkert heyrast í honum þegar mál eru erfið. Eyþór stingur niður penna í Morgunblaðinu í dag þar sem hann skrifar meðal annars um málefni Fossvogsskóla.

„Fossvogsskóli er skólabókardæmi um vanrækslu. Skólabókardæmi um vanrækt viðhald. Vanrækta upplýsingagjöf. Og vanræktar viðgerðir. Fram hefur komið að búið er að þrefalda framlög til viðhalds skólabygginga frá 2016. Það segir einmitt mikla sögu. Það sýnir svart á hvítu hvað viðhaldið var vanrækt árum saman. Borgin ber margfalda ábyrgð,“ segir Eyþór í grein sinni og fer aðeins yfir málefni skólans sem hafa verið í deiglunni vegna mygluvanda.

„Borgin sinnti ekki viðhaldinu en talar fjálglega um lýðheilsustefnu. Annað húsnæði borgarinnar hefur líka liðið fyrir lélegt viðhald. Leikskólar og frístundahúsnæði. Meira að segja Korpuskóli sem nú er notaður sem varaskeifa. Húsnæði í Gufunesi reyndist asbestmengað. Félagsbústaðir búa við of lítið viðhald. Og er einhver búinn að gleyma höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur? Báran er ekki stök. Hún er það sjaldnast,“ segir Eyþór sem heldur áfram gagnrýni sinni á borgina.

„Borgin hefur handvalið eigin félög í viðskiptum og þverneitað að bjóða út þjónustu fyrir milljarða króna þvert á lög. Fjórir nýir úrskurðir hafa fallið um lögbrot borgarinnar í innkaupum. Samtök iðnaðarins kærðu ólögmæt margra milljarða LED-kaup borgarinnar af ON, dótturfélagi Orkuveitunnar, sem gerð voru án útboðs. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vildu bjóða út raforkukaup borgarinnar en því var hafnað. Nú liggur fyrir úrskurður um að þessi kaup voru ólögmæt.“

Eyþór segir borgina skulda mikið og þá einna helst afsökunarbeiðni.

„Hún skuldar börnum betra húsnæði. Og hún skuldar öllum sem málið varðar skýringar. Og hún skuldar einlæga afsökunarbeiðni. Og hvar er borgarstjóri? Hann er ekki á mælendaskrá þegar vandamálin eru rædd í borgarstjórn. Fjallar um lýðheilsustefnu í löngu máli. En ekkert heyrist í honum þegar mál eru erfið. Það væri við hæfi að afsökunarbeiðni kæmi frá borgarstjóra á hvernig komið er fyrir Fossvogsskóla. Biðja foreldra, kennara og nemendur afsökunar. Það væri góð byrjun, nú þegar mál Fossvogsskóla eru komin á byrjunarreit.“