Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir að húsnæðisáætlun borgarinnar sé stórgölluð. Eyþór skrifar um þetta í Morgunblaðið í dag þar sem hann bendir á að gert sé ráð fyrir að rúmlega 4.000 íbúðir séu byggðar þar sem nú er Reykjavíkurflugvöllur.
„Ekkert liggur fyrir um að flugvöllurinn sé á förum. Þvert á móti hafa borgin og ríkið gert samkomulag um að hann verði áfram í Vatnsmýri á meðan enginn jafn góður kostur eða betri finnst. Áhrif kórónukreppunar minnka auk þess líkur á nýjum flugvelli í Hvassahrauni. Að ekki sé minnst á jarðhræringar.“
Eyþór segir að það séu því engar haldbærar forsendur fyrir því að gera ráð fyrir íbúðum á flugbrautunum og húsnæðisáætlun borgarinnar sé gölluð.
„Hér er gat upp á 4.000 íbúðir. Þá vekur athygli að borgin telur þörf fyrir 24.200 íbúðir á næstu tuttugu árum. Til að mæta þeirri þörf er stefnt að byggingu 1.100 íbúða á ári. Það gera 22 þúsund íbúðir. Hér er annað gat í áætluninni upp á meira en tvö þúsund íbúðir í viðbót. Munar um minna. Það vantar með öðrum orðum íbúðir sem eru á við þrjú Seltjarnarnes. Er nema von að aðvörunarljósin bliki?“