Ey­þór Arnalds vill reisa byggð á stærð við Móna­kó: „Samt hefur ekkert gerst“

Ey­þór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæðis­flokksins Reykja­vík, skrifaði Face­book færslu fyrr í dag þar sem hann gagn­rýndi að­gerðar­leysi borgar­meiri­hlutans í í­búða­málum.

Þar segir hann að skipu­leggja hafi átt land­svæðið Keldur undir í­búa­byggð sem hýst gæti allt að 2.000 í­búðir. Til þess að gera betur grein fyrir raun­veru­legri stærð svæðisins grípur hann til á­huga­verðrar við­líkingar: „Keldur eru á stærð við hálft Móna­kó.“

Móna­kó er smá­ríki sem þekkt er fyrir miklar vel­lystingar, spila­víti og ofur­ríka íbúa og gesti.

Til­lögur að í­búa­byggð í Keldum hafi komið fram í tengslum við Lífs­kjara­samninginn 2019 og finnst Ey­þóri langt um liðið: „Samt hefur ekkert gerst“

Ey­þór heldur á­fram að skjóta á meiri­hlutann og bendir á svæði í Úlfarsár­dal þar sem hægt væri að byggja 600 í­búðir. Engu hefur þó verið út­hlutað og deili­skipu­lagið „látið damla“ eins og hann kemst að orði.

Einnig nefnir hann BSÍ reitinn sem hann segir að sé á stærð við Land­spítala­lóðina. „Ekkert hefur miðað í að skipu­leggja hana,“ segir Ey­þór. Á henni mætti byggja 500 í­búðir og því sam­tals eru þetta yfir 3.000 í­búðir, eins og segir í færslu Ey­þórs.