Stórtíðindi bárust úr pólitíkinni seint í gærkvöldi þegar Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, tilkynnti að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér á framboðslista flokksins í kosningunum í vor.
Eyþór hafði áður gefið það út að hann hygðist halda áfram og stefndi allt í baráttu á milli hans og Hildar Björnsdóttur. Eyþór tilkynnti hins vegar seint í gærkvöldi að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér.
„Ég mun að sjálfsögðu gegna skyldum mínum út kjörtímabilið og láta síðan af þátttöku í stjórnmálum að sinni. Ákvörðun mín er tekin af persónulegum ástæðum, ekki pólitískum.“
Eyþór segist þess fullviss að Sjálfstæðisflokkurinn muni vinna góðan sigur í vor og þeir sem þekkja hann viti að hann óttast ekki niðurstöður í nokkru prófkjöri. Eins og fyrr sagði stefndi allt í uppgjör á milli hans og Hildar.
„Eins er rétt að árétta að ákvörðunin er algjörlega óháð því hvaða fyrirkomulag sjálfstæðismenn í Reykjavík kjósa að viðhafa við val á framboðslista eða hvaða einstaklingar munu gefa kost á sér í því vali.“
Eyþór segir að kosningabaráttan fram undan sé löng og ströng sem kallar á að allt annað víki á meðan.
„Ég hef einfaldlega komist að þeirri niðurstöðu að ég þurfi og vilji meiri tíma til að sinna mér og mínu, heimili og hugðarefnum. Nú er það annarra að taka við keflinu í því boðhlaupi sem pólitíkin er. Sjálfstæðisflokkurinn býr að því að þar er stór og breið forystusveit og enginn hörgull á fólki til þess að taka við því og leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs. Það verður sigur Reykjavíkur og Reykvíkinga.“
Eyþór kveðst þakklátur öllum þeim sem hafa verið honum samferða á þessari pólitísku vegferð í borginni síðustu fjögur árin, bæði liðsmönnum og mótherjum.
„Sérstaklega þakka ég auðvitað öllum þeim sem hafa stutt mig dyggilega með ráðum og dáð. Því fólki verð ég ævarandi þakklátur. Ég óska Sjálfstæðisflokknum velfarnaðar í komandi kosningum og ég mun leggja mitt af mörkum til að vinna Sjálfstæðisflokknum brautargengi í vor. Þá vil ég nota tækifærið og óska öllum gleðilegra jóla og friðar og farsældar á nýju ári.“