Ey­steinn Þor­valds­son er látinn

Ey­steinn Þor­valds­son, prófessor í ís­lenskum bók­menntum, er látinn, 88 ára að aldri. Greint er frá and­láti Ey­steins í Morgun­blaðinu í dag en hann kom víða við á löngum ferli sínum, þá einna helst við kennslu en einnig í fjöl­miðlum.

Ey­steinn út­skrifaðist sem stúdent úr MR árið 1954 og stundaði nám í fjöl­miðla­fræði við há­skólann í Leipzig á sjötta ára­tug liðinnar aldar. Í kjöl­farið starfaði hann sem blaða­maður og frétta­stjóri á Þjóð­viljanum.

Ey­steinn byrjaði snemma að fást við kennslu og starfaði meðal annars við Réttar­holts­skóla og Gagn­fræða­skóla Garða­bæjar. Hann var svo ís­lensku­kennari við MH og Mennta­skólann við Tjörnina.

Hann stundaði nám í ís­lensku og þýsku við Há­skóla Ís­lands með fram kennslu og lauk prófi í ís­lenskum bók­menntum árið 1977. Hann var kennari og síðar prófessor við Kennara­há­skóla Ís­lands.

Ey­steinn skrifaði fjölda rit­gerða og bóka, rit­stýrði ljóða­söfnum og var ötull þýðandi.

Í Morgun­blaðinu kemur einnig fram að Ey­steinn hafi stundað glímu og júdó, en hann var einn af frum­kvöðlum þeirrar í­þróttar hér á landi. Börn Ey­steins eru Drífa, Ást­ráður, Heiður, Odd­geir, Björg og Úlf­hildur.