Eyjólfur biðst afsökunar á brandaranum: „Vona að allir Pólverjar hafi það sem best á Íslandi“

Oddviti Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, Eyjólfur Ármannsson, segir það ekki hafa verið markmið sitt að særa Pólverja með brandara sem birtist í svokallaðri oddvitaáskorun á Vísi, þar sem Eyjólfur átti að svara hinum ýmsu spurningum um sjálfan sig.

Svar hans við spurningunni um hver hans uppáhalds fimmaurabrandari væri vakti mikla reiði á samfélagsmiðlum en þó nokkrir töldu umræddan brandara vera hatursorðræðu og útlendingahatur þar sem brandarinn snýst um að Íslendingur fleygi Pólverja fram af Eiffel-turninum því það „er svo mikið af Pólverjum á Íslandi.“

Málið var einnig til umræðu í Facebook hópnum Fjölmiðlanördar. „Að gefnu tilefni, hvernig ætti fjölmiðill að bregðast við þegar oddviti flokks slær á létta strengi um að drepa Pólverja á Íslandi undir hattinum "Besti fimmaurabrandarinn?",“ segir í færslunni.

Sjá einnig: Uppáhalds „fimmaurabrandari“ oddvita Flokks fólksins vekur reiði

Í ummælum við þá færslu má finna skjáskot af svari Eyjólfs úr öðrum hópi, Facebook hóp fyrir Íslendinga í útlöndum, þar sem hann var spurður um hvað honum þætti fyndið við að kasta Pólverja niður úr Eiffel-turningun.

„Frakkar elska Croissant, Pólverjar elska pylsur, og Íslendingar elska Pólverja,“ skrifar Eyjólfur í svarinu og vísar þar til restarinnar af brandaranum.

„Hef unnið með Pólverjum. Frábært fólk, og ekki hægt að hugsa sér betra fólk á Íslandi, duglegt og hæfileikaríkt og leggur mikið af mörkum samfélagsins. Vona að allir Pólverjar hafi það sem best á Íslandi og njóti sín,“ segir hann í kjölfarið.

Hann greinir frá því að hann hafi verið beðinn um „aulabrandara“ sem hluta af áskoruninni og þessi hafi verið fyrir valinu. Líkti hann brandaranum við Hafnfirðingabrandara eða ljóskubrandara.

„Ef ég hef sært einhverja Pólverja með brandaranum þá bið ég auðvitað afsökunar á því.“

Brandara Eyjólfs má finna hér.