Eyjamenn æfir yfir um­mælum Ás­geirs um Þjóð­há­tíð: „Æ í al­vöru? Erum við ekki komin lengra?“

Íris Róberts­dóttir, bæjar­stjóri Vest­manna­eyja, er ekki á­nægð með Ás­geir Guð­munds­son, stjórnar­mann í Sam­tökum reyk­vískra skemmti­staða og einn skipu­leggj­enda Inni­púkans.

Ás­geir sagði í sam­tali við Vísi að sam­tökin ætla að senda allt sitt starfs­fólk á nám­skeið til þess að bregðast við mögu­legu of­beldi um helgina. Hann sagðist einnig hlakka til að stríða úti­há­tíðunum og að „það sé aldrei betra að vera í Reykja­vík heldur en akkúrat þessa helgi því að fíflin eru farin til Eyja.“

Íris ekki á­nægð með þessi um­mæli og deilir fréttinni á Face­book og segir: „Æ, í al­vöru? Erum við ekki komin lengra? Eru þá öll ”fíflin” allar aðrar helgar í Reykja­vík? Tökum um­ræðuna á hærra plan, stöndum alltaf saman gegn of­beldi. Allar helgar og alla daga!“ skrifar Íris.

Fjöl­margir taka undir með Írisi og er ljóst að Eyja­menn eru ekki ánægðir með ummæli Ásgeirs.