„Ég þarf einmitt að flytja aftur og var að skoða íbúð. Þá sá ég helvítið aftur,“ segir Eydís Ósk Hilmarsdóttir. Eydís varaði við svikahrappi í þó nokkrum Facebook-hópum í gær enda vill hún gjarnan koma í veg fyrir að aðrir lendi í svipuðum sporum og hún.
Eydís gekk í gildru svikahrappsins á síðasta ári þegar hann auglýsti íbúð til leigu á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem sagðist heita Gabriel Pelzer, sagði Eydísi að hann ætti íbúð við Austurbrún en sjálfur ætti hann heima í Madrid á Spáni. Dóttir hans, sem hefði verið í námi hér á landi, hefði búið í íbúðinni en hún væri nú laus til leigu.
Var í óþægilegri stöðu
Auglýst leiguverð var 120 þúsund krónur á mánuði auk 120 þúsund króna tryggingu. Til að fá íbúðina þurfti Eydís því að reiða fram 240 þúsund krónur sem hún gerði. Eydís þarf einmitt að finna sér nýja íbúð til leigu og á vafri sínu um leigusíður í gær kom hún auga á þennan sama mann sem notaði sama netfang og sömu myndir.
Eydís segir að undir venjulegum kringumstæðum sé hún ekki mjög auðtrúa, en þegar hún freistaði þess að fá íbúðina leigða á síðasta ári hafi hún verið í erfiðri stöðu. „Ég var í óþægilegri stöðu og pínu óþreyjufull. Ég hafði búið með kærastanum mínum í nokkuð langan tíma eftir að við hættum saman og vildi komast út,“ segir hún.
8 ára Labrador-hundur og barnabarn á leiðinni
Úr varð að hún setti sig í samband við umræddan mann sem bauð henni íbúð við Austurbrún – í sama hverfi og hún vildi helst búa í. Þau hófu tölvupóstsamskipti þar sem maðurinn, Gabriel Pelzer, sagðist ekki komast til Íslands til að afhenda henni lyklana að íbúðinni. Hann væri fastur í vinnu og akkúrat á þessum tíma stæði yfir þjálfun nýrra starfsmanna sem hann hefði umsjón með. Hann væri 58 ára byggingarverkfræðingur, ætti 25 ára dóttur sem hefði verið í námi hér á landi, væri hamingjusamlega kvæntur og fjölskyldan ætti 8 ára Labrador-hund. Þá tók hann fram að hann væri að verða afi.
Þar sem Gabriel sagðist vera fastur á Spáni tjáði hann Eydísi að Airbnb þyrfti að vera milligönguaðili vegna viðskiptanna. Það sem Eydís vissi ekki var að svikahrappurinn hafði sett upp vefsíðu sem leit nákvæmlega eins út og Airbnb. „Ef maður skoðar linkinn þá sér maður að þetta er ekki frá Airbnb. Maður fær tilkynningu úr netfangi sem virðist vera frá Airbnb en er það ekki. Hann býr til heilan heim með feiksíðu,“ segir hún.
Kenndi sjálfri sér um
Eydís hafði ekki notað Airbnb áður en ákvað að treysta manninum, taldi hún að Airbnb væri ákveðinn öryggisventill og þá féll hún fyrir frásögn mannsins. Hún millifærði því fyrir tryggingunni og fyrsta mánuðinum, samtals 240 þúsund krónur, sem hún hefur ekki fengið aftur. Aðspurð segist hún ekki hafa kært málið til lögreglu á sínum tíma en líklega hefði hún betur gert það. „Ég var eiginlega með skottið á milli lappanna og kenndi sjálfri mér um,“ segir hún um ástæðu þess að hún lagði ekki fram kæru.
Sem fyrr segir virðist sami einstaklingur enn vera á ferðinni á íslenskum leigusíðum. Eydís skrifaði færslu í fjölmargar grúppur í gær þar sem hún hvatti fólk til að falla ekki í sömu gildru og hún. Umræddur einstaklingur notaði netfangið steyer178@hotmail.com og sagðist í umræddri auglýsingu vera með 2 herbergja íbúð miðsvæðis í Reykjavík til leigu.