Ærslabelgurinn, eða hoppudýnan, sem börn í Hveragerði hafa getað nýtt sér undanfarin sumur er metin ónýt og verður ekki hægt að endurnýja hana fyrr en næsta vor.
Frá þessu er greint á vef Hveragerðisbæjar en þar segir að fjárhagslegt tjón sé verulegt. „Það er leiðinlegt að allt of margir eru að hjóla á dýnunni og er dýnan mikið rifin. Skransför eftir vespu eða hlaupahjól eru á dýnunni,“ segir í frétt á vef bæjarins.
Bæjarstjórn samþykkti kaup á dýnunni, sem er 100 fermetrar, árið 2017 og var hún sett upp á vormánuðum 2018.
Á vef Hveragerðisbæjar eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að ræða við börn sín um mikilvægi þess að fara vel með leiktæki og aðrar eigur allra íbúa sem eru víða í bænum.
„Það er göfugt að bera virðingu fyrir náttúrunni og umhverfinu. Það er dapurt að nokkrir aðilar stundi skemmdarverk sem hefur áhrif á okkur öll. Því þurfum við að minna hvort annað á að ganga vel um.“
Meðfylgjandi mynd er af vef Hveragerðisbæjar.