Evu Maríu brugðið í morgun: Þarna hefði getað farið mjög illa

Sjónvarpskonunni Evu Maríu Jónsdóttur var verulega brugðið í morgun þegar hún varð vitni að óhugnanlegu umferðarslysi í uppsiglingu.

„Barn á barnaskólaaldri (svartklætt og lítt sýnilegt) var að ganga yfir ljósin frá Eiðistorgi í átt að Mýró. Þar er grænt ljós fyrir bíla sem ætla að beygja inn á Suðurströnd á sama tíma og græni kallinn logar. Tveir bílar óku alveg upp við þetta barn sem í bæði skiptin hörfaði og bjargaði sér þannig frá stórslysi,“ segir Eva María í íbúahópi Seltirninga á Facebook.

Biðlar hún til yfirvalda að skoða þetta, laga þetta og tryggja öryggi þeirra barna sem eru á leið í skólann og þurfa að fara yfir þessi gatnamót.

„Svo ættu allir akandi að vera sérstaklega á varðbergi á þessum tíma, í þessu myrkri. Þetta var vægast sagt lífshættulegt fyrir barnið.“

Eva María bætir því við í athugasemd að hún hafi elt annan bílinn sem ók yfir og næstum á barnið og ræddi við bílstjórann í mestu vinsemd. „Sá var að fara með eigið barn á leikskóla og sá hinn unga vegfaranda ekki. En hér þurfum við að láta umferðarmannvirki hjálpa okkur enn frekar.“

Margir taka undir með Evu Maríu en þetta er ekki í fyrsta sinn sem umrædd gatnamót eru til umræðu í hópnum. Karl Pétur Jónsson, Seltirningur og bæjarfulltrúi, segir að á þessum gatnamótum hafi oft stappað nærri harmleik.

„Endurbætur á þessum gatnamótum hafa staðið til í nokkur ár. Til stendur að setja upp ljós sem gefa gangandi vegfarendum aukinn forgang. Til viðbótar hefur verkið kvartað yfir slæmri lýsingu á gatnamótunum. Veit ekki hvort stendur til að bæta úr því.“

Karl Pétur segir að tafirnar á þessu verki séu raktar til misheppnaðs útboðs Vegagerðarinnar.

„En fyrir mína parta tel ég að bærinn sjálfur þurfi að grípa til ráðstafana strax. Til dæmis væri fullkomlega eðlilegt að gangbrautarverðir væru sitthvoru megin við Nesveginn til að aðstoða unga vegfarendur yfir götuna. Þá hvílir auðvitað ríkasta skyldan á okkur ökumönnum förum þarna um.“