Eva Hauksdóttir, móðir Hauks Hilmarssonar, sem talinn er hafa farist í loftárás í Sýrlandi árið 2018, telur að hann væri búinn að hafa samband ef hann væri á lífi.
Eva er gestur Sigmars Guðmundssonar í þættinum Okkar á milli sem er á dagskrá RÚV í kvöld.
Haukur var staddur í Sýrlandi þar sem hann barðist með Kúrdum, en hann var þekktur aðgerðasinni á sínum yngri árum og barðist meðal annars gegn Kárahnjúkavirkjun og fyrir réttindum hælisleitenda.
Jarðneskar leifar Hauks hafa ekki fundist og segir Eva að vonarneisti kvikni stundum um að hann sé á lífi. „Þegar ég hugsa það rökrétt þá nei, hann væri búinn að hafa samband. Ég held það séu ekki neinar líkur á því en tilfinningar eru ekki alltaf rökréttar og það koma dagar þegar maður fyllist órökréttri von. En ég staldra ekki við það,“ segir hún í þættinum í kvöld en brot úr honum hefur verið birt á vef RÚV.
Mannréttindasamtökum var ekki hleypt inn á svæðið þar sem talið var að Haukur hafði fallið. Eva segir erfitt að kveðja ástvin sem ekki hefur fundist en bendir á að margir Íslendingar hafi upplifað það. Hún sé því ekki ein.
Fjölskylda og vinir Hauks reyndu hvað þau gátu að fá upplýsingar um það sem gerðist en það reyndist þrautin þyngri. Segir Eva að hún hafi verið gagnrýnd fyrir að fara ekki sjálf út og leita að honum.
„Ég hef meira að segja fengið það framan í mig hvers kona móðir ég sé að hafa ekki farið að leita að honum,“ segir Eva. „Hvar átti ég að leita? Og hvað ef ég hefði fundið eitthvað? Ef ég hefði fundið mannabein, átti ég að taka þau í ferðatösku og fara með á lögreglustöðina í Reykjavík?“