„Stríð. Stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi, stríð gegn fíkniefnum, stríð gegn jaðarsettu fólki. Dómsmálaráðherra lýsir yfir stríði; stríði á hendur einstaklingum sem kerfið og samfélagið hefur brugðist ítrekað. Hvernig má það vera að árið 2022 geti dómsmálaráðherra talið að lausnin við afbrotahegðun felist í því að fara í stríð?“
Svona hófst ræða sem Eva Sjöfn Helgadóttir, varaþingkona Pírata, hélt á Alþingi í dag undir dagskrárliðnum störf þingsins.
Þar gagnrýndi hún fyrirhugaðar aðgerðir yfirvalda sem snúa að skipulagðri brotastarfsemi. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að átak til að höggva að rótum þessarar starfsemi vera í undirbúningi, en segja má að hálfgerð ofbeldisalda hafi gengið yfir hér á landi undanfarin misseri þar sem hnífaárásir hafa til dæmis verið áberandi. Nú síðast réðust hátt í 30 manns inn á skemmtistaðinn Bankastræti Club og veittu þar þremur mönnum áverka með hnífum.
Jón var gestur Bítisins á Bylgjunni í gærmorgun þar sem hann sagði að um væri að ræða „stríð“ gegn skipulagðri brotastarfsemi. Eva Sjöfn gagnrýnir þessa orðræðu og segir ótrúlegt að því sé haldið fram að einhver lausn sé fólgin í því að fara í stríð.
„Stríð leysir engin vandamál. Það býr til fleiri ófyrirséð vandamál og magnar núverandi vandamál upp. Aukning alvarlegra ofbeldisbrota hjá ungu fólki verður ekki leyst með auknum vopnaburði og beitingu vopna. Málið leysist ekki með því að beita meiri hörku, þvert á móti. Það þarf að horfa á stóru myndina og leysa vandann með því að setja miklu meira fjármagn, kraft og vilja í velferðarkerfið og heilbrigðiskerfið svo hægt sé að sinna einstaklingum sem eru hjálparþurfi á réttan hátt.“
Í ræðu sinni benti Eva á að alvarlegum ofbeldisbrotum unglinga og barna hefði fjölgað mikið síðastliðinn áratug.
„Það er greinilega eitthvað alvarlegt að í kerfinu okkar. Við niðurgreiðum sálfræðiþjónustu. Við hrekjum sálfræðinga úr heilsugæslunum. Barna- og unglingageðdeild annar ekki neyðinni. Velferðarkerfið er í molum og úrræðaleysið er algjört þegar kemur að ungu fólki með flókinn hegðunar- og geðvanda. Dómsmálaráðherra er á rangri leið,“ sagði hún.
Eva kallaði eftir því að ríkisstjórnin myndi horfast í augu við þennan vanda og laga hann strax.
„Velferðarkerfið og heilbrigðiskerfið öskrar á aðstoð. En nei, segir dómsmálaráðherra og ríkisstjórnin. Þau vilja heldur hella olíu á eldinn og stigmagna vopnavæðingu enn frekar, enn hraðar með enn einu stríðinu. Við þurfum raunverulega mannúð, aðgerðir sem skila raunverulegum árangri. Aukið ofbeldi og jaðarsetning skilar engum árangri.“