Eva Sjöfn með ný­stár­lega hug­mynd í geð­heil­brigðis­málum: „Hefur þegar gefist vel víðs vegar um heiminn“

„Undan­farið hefur um­ræða um geð­heil­brigðis­mál orðið um­fangs­meiri í sam­fé­laginu og á­kall er eftir auknu að­gengi að fag­legri þjónustu. Í því sam­hengi er mikil­vægt að efla sam­starf milli geð­heil­brigðis­kerfisins og lög­reglunnar, eins og hefur þegar gefist vel víðs vegar um heiminn,“ skrifar Eva Sjöfn Helga­dóttir, vara­þing­maður Pírata og sál­fræðingurá Vísi.

Grein Evu heitir „Geð­heil­brigðis­starfs­maður í lög­reglu­bíl“ en þar fer hún yfir mikil­vægi þess að efla við­bragð í geð­heil­brigðis­málum.

„Árið 1978 hóf lög­reglan í Bresku Kólumbíu í Kanada sam­starf við hjúkrunar­fræðinga í út­köllum sem tengdust geð­rænum vanda. Síðan þá hefur sam­starf lög­reglu og heil­brigðis­starfs­fólks verið ein af grunn­stoðum út­kalls­þjónustu í fylkinu. Frá árinu 1989 hefur svo­kallað al­manna­öryggis­teymi, kallað CA­HOOTS, verið starf­rækt í Oregon-fylki Banda­ríkjanna, og önnur teymi víðs vegar um Banda­ríkin hafa verið stofn­sett í kjöl­farið,“ skrifar Eva.

„Verk­efni teymanna eru marg­vís­leg, en lög­reglan kemur bara við sögu ef út­kallið varðar of­beldis­fullan ein­stak­ling. Reynslan sýnir að að­eins í ör­fáum til­fellum þarf að kalla á að­stoð lög­reglu.Í Sví­þjóð hefur til að mynda verið komið á fót sér­stökum geð­heil­brigðis­sjúkra­bíl sem hefur starfað frá árinu 2015,“ bætir hún við.

„Í vikunni sem leið lagði ég á­samt með­flutnings­fólki mínu þings­á­lyktunar­til­lögu um að koma á fót neyðar­geð­heil­brigði­s­teymi og tryggja því fjár­mögnun.

Teymið yrði skipað heil­brigðis­starfs­fólki með sér­þekkingu á sviði geð­heil­brigðis, vímu­efna­vanda og skaða­minnkunar, og það myndi sinna neyðar­út­köllum í til­vikum þar sem ein­staklingar á vett­vangi eiga við geð­rænan vanda og/eða vímu­efna­vanda að stríða.

Á sama tíma þurfum við að vald­efla við­bragðs­aðila hjá neyðar­línunni og lög­reglu með fræðslu svo þau geti metið hve­nær þörf sé á að­stoð frá heil­brigðis­starfs­fólki í út­köllum,“ skrifar Eva.

„Þegar þessir hópar vinna vel saman bætir það lífs­gæði allra. Fólk með geð­sjúk­dóma á auð­veldara með að fá geð­heil­brigðis­þjónustu, lög­reglan upp­lifir færri á­föll og minni streitu og geð­heil­brigðis­starfs­menn hafa tæki­færi til að hafa enn meiri, bein og já­kvæð á­hrif á sam­fé­lagið.“

„Það er mikil­vægt að byggja brýr milli lög­gæslu og heil­brigðis­þjónustu og þá sér­stak­lega tryggja það að ein­staklingar fái rétta þjónustu hverju sinni,“ skrifar Eva enn fremur.