Eva Pandora Baldursdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, segist lengi hafa borið taugar til Steingríms J. Sigfússonar, forseta Alþingis og þingmanns til fjölmargra ára.
Steingrímur er að setjast í helgan stein eftir þetta kjörtímabil, en hann hefur setið á þingi frá árinu 1983. Hann flutti sína síðustu eldhúsdagsræðu í gærkvöldi og af því tilefni rifjaði Eva upp skemmtilega sögu af því þegar hún steig í fyrsta skipti í pontu Alþingis til að flytja ræðu.
„Seinasta ræðan hans SJS. Þegar ég var að fara í pontu í fyrsta sinn var ég mega stressuð og Steingrímur spottaði það úr forsetastól, brosti til mín og nikkaði. Eftir ræðuna hvíslaði hann að mér „þú stóðst til vel”. Eftir það er ég alltaf með smá taugar til hans,“ sagði Eva sem sat á Alþingi frá 2016 til 2017.
Seinasta ræðan hans SJS 🥺 þegar ég var að fara í pontu í fyrsta sinn var ég mega stressuð og Steingrímur spottaði það úr forsetastól, brosti til mín og nikkaði. Eftir ræðuna hvíslaði hann að mér „þú stóðst til vel”. Eftir það er ég alltaf með smá taugar til hans #eldhúsdagur
— Eva Pandora (@evapanpandora) June 7, 2021