Eva Pandóra Baldursdóttir, fyrrverandi þingkona Pírata, spyr sig hvort hún sé of hvatvís í skemmtilegri færslu á Twitter.
Margir virðast tengja við Evu enda uppsker hún mikil viðbrögð á miðlinum.
„Er ég of hvatvís? Var komin með ógeð af íbúðinni minni í gær og var handviss um að ég þyrfti að flytja,“ skrifar Eva Pandóra.
„Fann fína íbúð til sölu, fór og skoðaði. Fékk söluyfirlit og var farin að reikna út lán. Þegar ég kom heim fattaði ég að ég elska íbúðina mína en þurfti bara aðeins að taka til.“