Eva Hrund jarðsungin eftir harmleikinn á Blönduósi

Eva Hrund Pétursdóttir sem lést 21. ágúst síðastliðinn í skotárás á eigin heimili á Blönduósi verður jarðsungin þriðjudaginn 18. október næstkomandi. Fréttablaðið greinir frá.

Kári Kárason, eiginmaður hennar sem lifði af byssuskot árásarmanns, fjögur börn þeirra hjóna og fleiri aðstandendur birta tilkynningu um útför Evu Hrundar í Morgunblaðinu í dag.

Í tilkynningunni segir að Eva Hrund verði jarðsungin frá Bústaðakirkju. Bent er á styrktarreikning fyrir þá sem vilja minnast Evu, reikningsnúmer 0307-26-4701, kennitala 470169-1689.

Kári lá milli heims og helju á Landspítalanum eftir að hann fékk sjálfur skot í magann í árás byssumannsins á heimili þeirra en er á batavegi. Byssumaðurinn lést að talið er vegna viðbragðs sonar þeirra hjóna.