Það varð snemma ljóst að Diljá Pétursdóttir, sem fer fyrir Íslands hönd í Eurovision í vor, hefði mikla sönghæfileika. Diljá er fædd í desember 2001 og er því tiltölulega nýorðin 21 árs.
Diljá tók þátt í Jólastjörnunni árið 2013 en þá var hún aðeins tólf ára gömul. Hún söng fyrir framan reynslumikla tónlistarmenn sem sátu í dómnefnd, en meðal þeirra voru Björgvin Halldórsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Hulda Björk Garðarsdóttir og Gunnar Helgason.
Diljá komst í 10 manna úrslit og stóð sig býsna vel eins og sést í myndbandinu hér að neðan. Hún eiginlega heillaði dómnefndina upp úr skónum.