Eurojack­pot slær met: „Við erum með allra hæsta pott frá upp­­hafi núna“

„Í dag er EuroJack­pot potturinn í hæstu hæðum, en það er ó­­hætt að segja að fyrsti vinningur hefur hækkað um rúma fjóra milljarða síðan við fórum að draga tvisvar í viku. Við erum því með allra hæsta pott frá upp­­hafi núna,“ segir Hall­­dóra María Einars­dóttir, markaðs­­stjóri Ís­lenskrar get­­spár, í sam­tali við Frétta­blaðið.

Eins og staðan er núna stefnir fyrsti vinningur í EuroJack­pot 16,6 milljarðar. Hall­dóra bendir hins vegar á að enginn Ís­­lendingur hefur unnið fyrsti vinninginn enn sem komið er.

„Við Ís­­lendingar höfum ekki enn­þá unnið fyrsta vinning í EuroJack­pot, en við höfum fengið bæði annan og þriðja vinning nokkrum sinnum. Hæst voru það rúmar 130 milljónir sem Ís­­lendingur vann í öðrum vinning,“ segir Hall­­dóra.

Í fyrra vann heppinn Ís­­lendingur tæpa 1,3 milljarða í Vikinglottó. Um er að ræða stærsta vinning sem hefur komið til landsins. Næst hæsti vinningur kom síðan í desember í fyrra upp á rúm­lega 438 milljónir, einnig í Vikinglotto.

„Í Vikinglotto hefur fyrsti vinningurinn komið oftar en þrjá­tíu sinnum til landsins frá því að leikurinn byrjaði, en EuroJack­pot er nýjasti leikurinn. Það kemur að því að við fáum þann stóra hingað til landsins,“ segir Hall­­dóra von­­góð.

Hall­­dóra segir að þau fylgist ekki sér­­stak­­lega með fólki sem vinnur stórt í Lottó. Hún segir að nánast allir kjósi að halda nafn­­leynd.

„Við í rauninni hittum bara fólk þegar það kemur og sækir vinninginn, við bjóðum vinnings-höfum að þiggja fjár­mála­ráð­gjöf sem við mælum með að allir nýti sér. Vinnings­hafar njóta fullrar nafn­­leyndar hjá okkur og fylgjumst við ekkert nánar með þeim. Þó hefur komið fyrir að við hittum sömu vinnings­hafana oftar en einu sinni, en þá eru það þeir sem muna frekar eftir okkur en við þeim, segir Hall­­dóra.