Hugtakið stóridauði er nýtt í umræðunni en Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur hefur kosið að nota það orð yfir fyrirbæri sem á ensku kallast mass extinction, það er þegar nærri allt líf á jörðinni hefur þurrkast út. Þetta hefur fimm sinnum gerst í jarðsögunni að mati fræðimanna. Síðast varð stóridauði fyrir um 65 milljónum ára þegar smástirni skall á Júkatanskaga í Mexíkó. Í kjölfarið varð svo mikil kólnun í lofthjúpi jarðar að þrír fjórðu allra lifandi tegunda dóu út, þar með taldar risaeðlurnar.
Þorleifur Friðriksson verður gestur í þætti Björns Jóns Bragasonar í kvöld og mun þar velta því upp hvort við séum möguleaga að renna inn í sjötta skeið stóradauða en að þessu sinni sé mannskepnan gerandinn. Undir árslok 2007 voru 41.415 dýrategundir á válista Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN). Af honum eru nú 785 tegundir útdauðar og 16.306 í bráðri útrýmingarhættu. Hér sé manninum að mestu leyti um að kenna.
Í þættinum verður ekki aðeins rætt um útdauða dýrategunda heldur líka hnignun samfélaga og siðmenningar, en Þorvaldur hefur rannsakað hulduþjóðir sér í lagi Rómafólk og mun segja frá því í þættinum. Saga & samfélag í kvöld kl. 21.30 á Hringbraut.