„Það eru allar líkur á að fastir vextir á íbúðalánum bankanna muni að óbreyttu hækka nokkuð á næstunni vegna þessarar þróunar,“ segir Agnar Tómas Möller, sjóðsstjóri skuldabréfa hjá Kviku eignastýringu, í Fréttablaðinu í dag.
Í frétt blaðsins er greint frá því að ávöxtunarkrafa lengri ríkisskuldabréfa hafi hækkað um hátt í eina prósentu á síðustu þremur mánuðum en á sama tíma hafi fjármögnunarkjör bankanna á markaði versnað.
Bent er á að Íslandsbanki hafi hækkað vexti á húsnæðislánum í lok októbermánaðar og var hækkunin skýrð með vísan til hækkandi ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði.
Útlán til íbúðakaupa eru fjármögnuð með útgáfu sértryggðra skuldabréfa og miðast verðlagning þeirra við ákveðið álag ofan á ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa. Þegar ávöxtunarkrafa ríkisbréfanna hækkar, þá hækkar einnig ávöxtunarkrafa sértryggðu bréfanna og þar með vextir á íbúðalánum.
„Niðurstaðan er sú að langtímavextir eru nú hærri en í febrúar síðastliðnum og því eru stýrivaxtalækkanir að skila sér að mjög takmörkuðu leyti yfir í fjármögnunarkjör til lengri tíma,“ segir Birgir Haraldsson, sjóðsstjóri hjá AKTA sjóðum, í Fréttablaðinu.
Birgir tekur undir það að vextir á húsnæðislánum geti hækkað á næstu misserum.