Eru þetta verstu einkaskilaboðin?: „Hvað á þetta að vera??“

Notandi á Twitter hefur deilt það sem hún telur vera verstu skilaboð sem send hafa verið. Talsvert hefur verið rætt meðal kvenna um hvernig karlar nálgast þær á samfélagsmiðlum, er þá gjarnan teknar saman klisjur á borð við „hæ sæta“. Twitter notandinn Heiðbrá sagði nýverið skoðun sína á viðreynslum karla við yngri konur:

„Ef þú ert að detta í þrítugt og ert að reyna við stelpur undir 20 ertu ógeð,“ sagði hún og uppskar mikil viðbrögð á forritinu.

Í kjölfarið fékk hún skilaboð sem hún deilir og segir vera þau verstu í heimi:

daaam.jpg

Hún var ekki sátt og segir: „Þykir svona svo fynndið hvað á þetta að vera?? Eithvað feis á mig?? Á ég qð vera tekin með þessu?? Lmao“