Eru þetta bestu veitinga­staðir landsins? „Eitt mesta matar-surprise sem ég man eftir“

Jón Gnarr, fyrr­verandi borgar­stjóri Reykja­víkur, bað fylgj­endur sína á Twitter á dögunum að deila með sér bestu veitinga­stöðum landsins að þeirra mati.

Jón hafði í annarri færslu beðið fólk um að deila með sér verstu veitinga­stöðunum, en á CO­VID-tímum skulum við reyna að halda í já­kvæðnina og varpa frekar ljósi á þá staði sem eiga skilið hrós, þá bestu og þá sem hafa komið mest og skemmti­legast á ó­vart.

Ekki stóð á svörunum sem voru fjölmörg um fjöl­breytta staði, vítt og breitt um landið. Sjálfur nefnir Jón staðinn Hrauns­nef og svo nefnir hann eþíópíska staðinn Minilik á Flúðum.

Hér að neðan má sjá brot af því sem fólk nefndi en færslu Jóns má nálgast í heild sinni neðst í þessari frétt.


„Ég elska allt sem JÖMM gerir. Það ætti að vera JÖMM staður í hverri götu.“

„Ban Kúnn Hafnar­firði er perla Hafnar­fjarðar og frá­bær thai-veitinga­staður og frá­bær þjónusta.“

„Tjöru­húsið á Ísa­firði. Næsta spurning!“

„Rambaði inn á Mat Bar á Hverfis­götu um daginn. Frá­bær matur og skemmti­leg þjónusta.“

„Yuzu á Hverfis­götunni og Hof­land í Hvera­gerði. Hof­land kom lík­lega mest og skemmti­legast á ó­vart, topp 3 pizzur á landinu.“

„Von mat­hús í Hafnar­firði. Af­slöppuð stemming, vina­leg þjónusta, frá­bær matur og hóf­stillt verð­lagning.“

„Ég bjó í Eþíópíu í um fjögur ár og er mjög hrifinn af eþíópískum mat. Alltaf þegar ég er í stór­borg reyni ég að finna eþíópíska veitinga­staði. Og miðað við slíka staði utan Eþíópíu stenst staðurinn á Flúðum fylli­lega saman­burð og er því á heims­mæli­kvarða!“

„Vegan réttirnir á Bombay bazar!“

„Óx. Kemst ekkert ná­lægt því.“

„Austur Indía­fé­lagið hefur verið minn upp­á­halds spari­staður í mörg ár.“

„Sumac, dá­sam­legur matur og frá­bær þjónusta.“

„Asískt = Ban Thai
Ind­verskt = Bombay Bazaar
Sushi = Rub23 á Akur­eyri
Steik og þannig = Grill­markaðurinn.
Mest á ó­vart = Hrauns­nef í Norður­ár­dal.
Sjávar­réttir = Fisk­markaðurinn.“

„Hrauns­nef er eitt mesta matar surprise sem ég man eftir. Eftir fyrstu heim­sókn þangað bókaði ég gistingu og át þarna kvöld- og morgun­mat.“

„Kol og svo hef ég einu sinni prófað ÓX og það var geggjað.“

„Það besta sem ég fæ er Surf&Turf, smælki og Eda­mame á Sushi Social!“

„Krisp á Sel­fossi. Gera besta steikar­salat sem ég hef smakkað.“