Eru Ís­lendingar orðnir of kæru­lausir? „En nei höldum bara á­fram að hafa fjöl­menn partý“

Svo virðist sem ein­hverjum þykir að við Ís­lendingar séum orðnir of væru­kærir nú þegar þriðja bylgja CO­VID-19-far­aldursins er á fullri ferð. Þetta er að minnsta kosti raunin ef marka má um­ræður í fjöl­mennum Face­book-hópi, Kórónu­veiran CO­VID-19, sem telur rúm­lega 19 þúsund með­limi.

Í ný­legri færslu segir ein kona að það fari í taugarnar á henni hvað Ís­lendingar eru kæru­lausir á sama tíma og 10-50 manns eru að greinast á degi hverjum með CO­VID-19. „En nei höldum bara á­fram að hafa í­þrótta­mót og mjög fjöl­menn partý. Partýin eru engu skárri en að fara á pöbbana,“ segir hún.

Í at­huga­semdum taka margir undir þetta sjónar­mið og sumir furða sig á því af hverju sótt­varnir eru ekki hertar til að fækka smitum. Þá finnst öðrum að þrí­eykið svo­kallaða sé einnig orðið of væru­kært. Aðrir benda á að á­byrgðin verði að liggja hjá fólkinu sjálfu og það verði að passa upp á eigin sótt­varnir. „Þetta er allt undir okkur sjálfum komið […] Hver og einn þarf að passa uppá sótt­varnir.“

Ein­stak­lingur sem segist ein­mitt hafa gert það og ein­angrað sig til að forðast smit bendir á að það feli í sér mikla skerðingu. „Ein­angrun vegna þess að aðrir eru ekki að passa sig og eru að fjöl­menna. Það verður alltaf stór hópur sem mun ekki passa sig, þannig að sótt­varnir verður að herða til að ná tökum á þessu!.“

Undan­farna tíu daga hafa 363 smit greinst hér á landi, rúm­lega 36 á dag að meðal­tali, en hafa ber í huga að inni í þessum tölum er ekki hol­skeflan sem kom föstu­daginn 18. septem­ber þegar 75 smit greindust. 551 ein­stak­lingu er nú í ein­angrun á landinu með CO­VID-19.