Margir hafa áhyggjur af mögulegu stríði á milli Rússa og Vesturlanda vegna Úkraínu. Flestir óttast að Rússar geri innrás vestur á meðan aðrir telja að Rússar séu í raun fórnarlömbin, einn þeirra er tónlistarmaðurinn Erpur Eyvindarson sem útlistaði skoðunum sínum í Harmageddon:
„Það sem ég er búinn að komast að, við búum í algjörri búbblu. Stærstu fjölmiðlarnir eru í eigu stórfyrirtækjanna sem eru tengd vopnaiðnaðinum. Það er keyrt á brjáluðu narratívi. Það eru brjálaðar fyrirsagnir tíu ár aftur í tímann um að Rússar ætli að ráðast inn í Úkraínu. Og af hverju? Því þeir eru með 100 þúsund hermenn við landamærin, inni í sínu eigin landi.“
Erpur segir að fjölmiðlar séu með samræmt átak til að sverta Rússa:
„Af hverju mega Rússar ekki vera með heræfingar 100 þúsund manns? Enginn segir neitt þegar Bandaríkjamenn eru með heræfingar inni í Bandaríkjunum.“
Hann segir allt tal um að Rússar séu að undirbúa innrás vera samsæriskenningar:
„Það eru engar sannanir fyrir því að þeir ætli að ráðast inn sem er búið að sýna almenningi! Engin!“
Vísar hann í fyrri dæmi á borð við Írakstríðið og Tonkinflóa-atvikið í aðdraganda Víetnamstríðsins. „Þetta er algjörlega samsæriskenning um sannanir sem bakka það upp að þeir ætli þarna inn.“
Þá setur hann það í sögulegt samhengi:
„Það er milljón sinnum búið að ráðast á Rússa úr vestri. Hversu oft hafa Rússar ráðist í vestur?“
Hér má hlusta á umræðurnar í heild sinni.