Erpur á Al­þingi og Páll Óskar í for­setann?

Tón­listar­maðurinn Páll Óskar Hjálm­týs­son vill sjá rapparann Erp Ey­vindar­son bjóða sig fram til Al­þingis. Þetta kemur fram í face­book­færslu Páls Óskars.

Ummæli Páls Óskars koma í kjölfarið af löngu viðtali við Erp í podcast þættinum hans Sölva Trygga. Í við­talinu við Sölva Tryggva, segir Erpur frá því hvernig það var að rappa á ís­lensku þegar rapp­hljóm­sveitin XXX Rottweil­er hundar byrjuðu á­samt mót­lætinu sem sveitin lenti í vegna orða­lags.

„Ís­land þarf þetta hráa, filter­lausa sam­tala á hverjum degi takk. Við fögnum heiðar­leikanum þegar við heyrum hann og sofnum svo alltaf daginn eftir! Vantar ein­hver stein­efni, víta­mín og magnesíum í ís­lenska vatnið eða eitt­hvað?? Við erum of dofin. Við sofnum alltaf. Erp á Al­þingi!“ skrifar Páll í færslu sinni.

Erpur svara Páli Óskari í athugasemdum undir færslu hans með orðunum „ ... og þig í forsetann!“

Við­talið hasn Sölva Tryggva við Erp er að­gengi­legt hér.