Ernu líst ekki á blikuna: „Þetta er glapræði“ – Allt sem þarf er eitt smit

„Þetta er glapræði. Þótt land sé grænt þýðir það ekki að það komi ekki smitaðir einstaklingar hingað frá því landi eða í gegnum það.“

Þetta segir Erna Magnúsdóttir, dósent í lífefnafræði við læknadeild Háskóla Íslands, í opinni færslu á Facebook. Erna vísar þar í viðtal við Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í Kastljósi í gærkvöldi en þar sagði Svandís að frá og með 1. maí næstkomandi verði tekið upp litakóðunarkerfi við landamærin.

„Ríkisstjórnin hefur talað alveg skýrt í þeim efnum að þá taki við þetta litakóðunarkerfi sem við sjáum á hverjum degi þegar við sjáum Ísland grænt. Síðan fari það eftir því á hvaða stað viðkomandi ríki er hvaða reglur gilda fyrir viðkomandi borgara á landamærum. Þetta er okkar markmið, það hefur verið mjög skýrt, ríkisstjórnin hefur ákveðið þessa leið frá og með 1. maí. Það er mikilvægt fyrir alla sem eru að skipuleggja sína starfsemi o.s.frv. að þetta liggi fyrir,“ sagði Svandís meðal annars.

Áður hafði Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, gagnrýnt Þórólf Guðnason sóttvarnalækni fyrir að láta eins og ákvörðun um litakóðunarkerfi lægi ekki fyrir. Kórónuveirufaraldurinn geisar víða af fullum þunga í löndunum í kringum okkur þó staðan á Íslandi sé býsna góð um þessar mundir.

Ernu líst ekkert á það að litakóðunarkerfið verði tekið upp eftir einn og hálfan mánuð.

„Friðþæging ferðaþjónustunnar er greinilega mikilvægara verkefni hjá ríkisstjórninni en að leyfa landsmönnum um frjálst höfuð að strjúka í sumar. Við vitum að það þarf bara eitt smit til að koma af stað bylgju,“ segir hún.

Færsla Ernu hefur vakið talsverða athygli og deilir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason henni til dæmis á Facebook-síðu sinni. Hann segir:

„Erna Magnúsdóttir er dósent í lífefnafræði við Háskóla Íslands. Hún skrifar þetta. Svandís virðist ætla að halda fast við litakóðakerfið. En það var sett á þegar horfur voru á að miklu fleiri landsmenn yrðu bólusettir en raunin er. Bólusetning hefur tafist mikið og varla líkur á að markmiðunum með henni verði náð fyrr en síðla sumars eða í haust. Nefna má að í gær voru þrír ferðamenn greindir með kóvíð í seinni skimun.“

Þetta er glapræði. Þótt land sé grænt þýðir það ekki að það komi ekki smitaðir einstaklingar hingað frá því landi eða í...

Posted by Erna Magnúsdóttir on Þriðjudagur, 16. mars 2021